8. febrúar 2010
Lið FB hugsanlega dregið til baka
Á visi.is er nú frétt um óánægju nemenda við Fjölbrautarskólans í Breiðholti vegna ákvörðunar skólayfirvalda um að fella niður Árshátíð nemenda. Segir þar að einhverjir nemendur hafi mótmælt þessari ákvörðun með því að skrópa í tíma í dag og haft er eftir formanni Árshátíðarnefndar að rætt hafi verið um að draga jafnvel lið skólanns úr Gettu Betur í mótmælaskyni. Þetta myndi þýða að lið FSu færi beint í undanúrslit.
Hafa ber í huga að hvorki er í fréttinni rætt við neinn úr nefndinni sem hefur með Gettu Betur liðið að gera né liðið sjálft eða þá sem standa í kringum það þannig að ekki er ljóst hversu mikil alvara er í þessum orðum.
Í ljósi þessa er erfitt að lýsa sterkum skoðunum á þeirri stöðu sem komin er upp en það er mat þess sem þetta skrifar að úrsögn úr Gettu Betur myndi fyrst og fremst koma niður á nemendum sjálfum, og þá sérstaklega þeim sem lagt hafa á sig mikla vinnu við að koma liðinu í 8 liða úrslit og eiga góðan möguleika á því að fara lengra. Hvaða áhrif þetta hefði á skólayfirvöld er í fljótu bragði erfitt að sjá.

Egill Óskarsson
Athugasemdir (2)
8. febrúar 2010 | 18:04
Á dv.is kemur fram að liðið sjálft hafi sent skólameistara bréf þar sem fram kemur að liðið íhugi að draga sig úr keppni í GB.
8. febrúar 2010 | 22:04
Er von á umfjöllunum um viðureignirnar í síðasta þætti? (sem fór fram 27. janúar?). Það eru heldur engar umfjallanir um þetta kvöld á ruv.is