4 stig Vestmannaeyinga og óvæntur sigur MK 2007
Tvær pælingar.
Ég er nú búin að hlusta á fyrstu keppni gærkvöldsins tvisvar, einu sinn í beinni og aftur núna áðan. Ég punktaði hana hjá mér eins og ég geri þegar ég þarf að skrifa umfjallanir og það er sama hvað ég reyni ég finn ekki fjórða stig eyjamanna. Þegar 15 bjölluspurningar eru búnar þá tilkynnir Ásgeir að staðan sé 8-2. Ef ég er ekki þeim mun ruglaðri þá er bara eitt stig fyrir tóndæmin og þar sem FV nær seinni spurningunni þar þá ættu þeir að fara upp í 3 stig. Hvaðan kemur fjórða stigið?
Þessi bútur úr upptalningu á sigurvegurum seinustu ára á ruv.is/gettubetur gleður líka: 'og 2007 hampaði keppnislið MK hljóðnemanum eftir sigur á MR, 29:27.'
Gæti verið að Ásgeir hafi gefið 2 stig fyrir hljóðdæmið þar eð hann sé vanur tveggja stiga hljóðdæmum síðan úr keppnistíð hans með Verslunarskólaliðinu.
Mig grunar það helst já. Önnur útskýring gæti verið að þeir hafi allt í einu fundið eitt aukastig í hraðanum en þá hefði það átt að koma fram.