12. febrúar 2010
Gamlar syndir
Önnur umferð Gettu Betur fór fram miðvikudaginn 27. janúar og þá kom í ljós hvaða skólar tryggðu sér seinustu þrjú sætin í 8 liða úrslitum og þar með ferð í sjónvarpssal og beina útsendingu. Keppnirnar voru misjafnar þetta kvöldið, sú fyrsta var gríðarlega spennandi en hinar eitthvað minna, og endurspeglast það eitthvað í lengd umsagna.
Menntaskólinn á Akureyri 19 Fjölbrautarskólu Suðurlands 22
Eins og fram kom hér áðan þá var þessi keppni gríðarlega jöfn og greinilega um að ræða lið mjög jöfn að styrkleika. Þetta kom í ljós strax í hraðaspurningunum en eftir þær höfðu Sunnlendingar eins stigs forystu með 16 stig á móti 15. Skólarnir fór sér frekar hægt til að byrja með í bjölluhlutanum og munurinn varð aldrei meiri en 1 stig allt fram að 16. spurningu þegar FSu náði tveggja stiga mun, og þá voru aðeins tvö hljóðdæmi eftir.
FSu voru fyrri til á bjölluna í því fyrra en höfðu svarið ekki rétt og því möguleiki fyrir MA að halda sér inni í keppninni. Þau voru grátlega nálægt því, höfðu annað af tveimur atriðum sem spurt var um en það er ekki nóg og því ljóst að FSu fara í sjónvarpið í ár.
Akureyringar eru án nokkurs vafa súrir yfir því að hafa ekki komist í sjónvarpið, þar sem MA telur sig vera skóla sem alltaf á að eiga lið í átta liða úrslitum hið minnsta. Þau mættu hins vegar ofjörlum sínum þetta kvöldið.
FSu-liðar geta vel við unað. Þeir héldu ró sinni í mikilli spennu og eiga sæti sitt í sjónvarpinu skilið. Þar eiga þeir fínan möguleika á að komast áfram í undanúrslit en viðureign þeirra við FB gæti orðið jafn spennandi og þessi.
Broslegi punktur þessara keppni kom svo undir lokin þegar FSu-liðar giskuðu á að hljómsveitin sem framdi hið fíngerða elektró-popp sem fylgdi seinna hljóðdæminu væru pönkararnir í Morðingjunum. Þeir höfðu þó söngkonuna rétta, og með hvaða hljómsveit hún syngur venjulega, sem var það sem skipti máli.
Menntaskólinn á Egilsstöðum 27 Fjölbrautarskóli Norðurlands Vestra 11
ME hefur á seinustu árum átt nokkur fín lið og virðist vera nokkuð mikill metnaður fyrir keppninni fyrir austan. Þessi metnaður skilar þeim í sjónvarpið í ár eftir að liðið sýndi mikla yfirburði gegn töluvert lakari andstæðingi en það mætti í fyrstu umferð. Getumunurinn á milli skólanna kom fram strax í hraðaspurningum þar sem Skagfirðingar voru hægir en austanmenn ákveðnir og öruggir. Staðan eftir hraða var 18-8 fyrir ME en hefði þó kannski átt að vera 19-8. Í spurningu um sólguð Forn-Grikkja var Örn Úlfar að leita eftir svarinu Apollon en ME svaraði Helios. Það má vera að hægt sé að færa rök fyrir því að Helios sé ekki rétt svar við þessari spurningu en það hefði verið betra að fá þau fram frá dómaranum þar sem báðir þessir guðir voru kenndir við sólina á einhverjum tímabilum í tíð Forn-Grikkja.
Þetta var þó það eina markverða sem gerðist í keppninni sjálfri því ME jók muninn jafnt og þétt og ljóst er að þeir eiga góðan möguleika á móti FG á morgun. Eftir keppnina vöktu liðsmenn ME athygli á því, og komu fram mótmælum um, lokun svæðisútvarpsstöðva RÚV á Austurlandi. Þetta var ágætlega við hæfi þar sem þetta setur skipulag keppninnar á næsta ári í óvissu. Hvernig eiga liðin utan af landi að taka þátt ef engir starfsmenn eru á hljóðstofum?
Menntaskólinn í Reykjavík 38 Menntaskólinn að Laugarvatni 14
Meistararnir frá því í fyrra komust frekar auðveldlega í gegnum þessa hindrun. Þeir virkuðu gríðarlega öflugir og fengu heil 26 stig í hraðaspurningum gegn 12 stigum Laugvetninga. Eftir þetta virtust ML-liðar taka þá ákvörðun að hafa fyrst og fremst gaman að þessu og MR-vélin mallaði áfram. Það er erfitt að meta styrk Laugvetninga eftir þessari keppni en þeir stóðu sig ágætlega í fyrstu umferð og ef að liðið helst óbreytt að mestu og leggur hart að sér á næsta ári er ekkert sem segir að þeir gætu ekki mætt með fínt lið til keppni.
MR hljóta að teljast sigurstranglegir eftir þessar framistöðu. Hæsta skor umferðarinnar og þeir verða að teljast líklegir til að komast áfram í keppni gegn Kvennó

Egill Óskarsson