1. mars 2010
Rykmaurabúggí
Fjölbrautarskóli Suðurlands og Fjölbrautarskólinn í Breiðholti áttust við seinasta laugardagskvöld. Undirritaður hafði haft pata af því að báðir skólar hefðu verið frekar ánægðir með dráttinn og talið sig eiga ágæta möguleika á því að komast áfram. Því bjuggust margir við spennandi keppni.
Liðin virtust ágætlega stemmd fyrir keppnina og FSu liðar að vanda reffilegir í íþróttatreyjunum sínum. Góð stemning var líka í salnum þó að hann hafi ekki verið jafn fjölskipaður og í seinustu viku en kannski má rekja það að einhverju leiti til leiðinlegrar færðar suður fyrir fjall. Sunnlendingar unnu hlutkestið og kusu að sitja eftir og reyna sig við hraðaspurningarnar. Eitthvað virtist örla á stressi hjá þeim og stundum fannst manni svörin vera lengi á leiðinni en það kom þó ekki að sök því lið safnaði sér inn 17 stigum. Breiðhyltingar fóru hraðar yfir og fengu fleiri spurningar, voru enda duglegri að segja pass, en þgar upp var staðið höfðu þeir fengið 13 stig.
Það sem tók við í vísbendingaspurningunum tveimur hefur ekki sést oft í keppninni seinustu ár. Fyrri spurningin datt niður dauð, og það þrátt fyrir mjög sterkar vísbendingar sérstaklega í seinni tveimur liðunum, og út úr þeirri seinni fengu FSu-liðar eitt stig. Þetta gaf líklega sterkustu vísbendinguna um styrkleika liðanna tveggja.
Bjölluhlutinn gaf liðunum sín hvor fimm stigin og í honum kom líka hápunktur viðureignar kvöldsins sem var lúmskur brandari dómaranns um að rykmaurar væru einu dýrin sem ætu eigendur sína. Einhvern tíma hefðu það þótt fréttir að dómari í Gettu Betur veki meiri hlátur en Spaugstofan sem sýnd er fyrir keppnina. Liðin gerðu sig bæði sek um skrýtin mistök sem líklega má að einhverju leyti skrifa á stress og eins og önnur lið ráku þau sig á oft á tíðum óútreiknanlega króka í spurningum Arnar Úlfars.
Það var því fimm stiga munur á liðunum fyrir þriggja stiga spurningarnar tvær í lokin, en þrátt fyrir það voru án efa einhverjir búnir að afskrifa FB. Það átti þó ekki við liðið sjálft sem nældi sér í tvö stig í spjaldaspurningunni en græddu reyndar á furðulegum mistökum FSu sem fengu rangt fyrir að nefna þann sem tók við af Richard M. Nixon sem forseti Bandaríkjanna John Ford í stað Geralds. Þetta er atriði sem á að vera búið að fara yfir í þjálfun, að helst á bara að nefna eftirnöfn þegar spurt er um erlent fólk enda dugir rétt eftirnafn með röngu fornafni ekki til þess að fá stig. Það var því allt í einu kominn mikil spenna í viðureignina fyrir þríþrautina og ljóst að FB átti möguleika á sigri. Sunnlendingar voru fyrri á bjölluna en höfðu svarið rangt og því höfðu Breiðhyltingar sigurinn í hendi sér gætu þeir gefið rétt svar. Það tókst hins vegar ekki og þeir þurftu því að bíta í það súra epli að falla úr keppni þetta kvöldið. Lokastaðan var Fjölbrautarskóli Suðurlands 23 Fjölbrautarskólinn í Breiðholti 21
Í heildina var risið heldur lágt á þessari keppni. FSu liðar stóðu sig ágætlega í hraðaspurningum en verða að bæta sig mikið ætli þeir sér í úrslit. Skólinn er þó kominn í undanúrslit í fyrsta skipti í 11 ár og ber að óska þeim til hamingju með það. FB mættu ofjörlum sínum þetta kvöldið og naga sig líklega í handarbökin eftir fremur slappar hraðaspurningar sem urðu þeim að falli þegar upp var staðið, enda var nokkuð jafnræði með liðunum eftir þær.

Egill Óskarsson